Skíðaganga. Laxárdalsheiði frá Stangarafleggjara að Litlu Laugum í Reykjadal - aflýst
DAGS
Kl.
9-16
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services
Lýsing
Konni fararstjóri fór á svæðið í morgun (25/2) til að kanna aðstæður eftir hlákuna sem var í gær og hann metur það svo að þarna sé ekki nógu gott færi til skíðaiðkunar. Við aflýsum því ferðinni að sinni.
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Konráð Gunnarsson og Sigurgeir Sigurðsson
Gengið frá hringvegi 1 við afleggjarann að Stöng á Nónskarðsási. Haldið norður heiðina og stefnt að Másvatni um Kollásamýri að Hallgrímslág þar sem tveir menn urðu úti um 1830. Þaðan er haldið yfir Kalmanstjörn, upp á Ljótsstaðahall og að Skollhólum þar sem tvær vinnukonur frá Þverá í Laxárdal urðu úti 1880. Þaðan er haldið að suðurenda Hvítafells og sveigt vestur af heiðinni og niður að Litlu-Laugum í Reykjadal. Skíðað er í 3-4 klst. Selflytja þarf bíla milli Litlu-Lauga og Stangarafleggjarans.
Vegalengd: 18 km Gönguhækkun: Óveruleg.
Verð: 2.700 / 4.400 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu

